Your Custom Text Here
Viktor Örn Andrésson & Hinrik Lárusson eigendur Lux veitinga
Gamla bíó hefur hafið samstarf við Lux veitingar og munu þeir nú sjá um veitingar í öllum veislum í Gamla bíó. Lux veitingar voru stofnaðar af þeim Hinriki Lárussyni og Viktori Erni Andréssyni árið 2018. Eins og nafnið gefur til kynna þá standa Lux veitingar fyrir lúxus, gæði og persónulega þjónustu. Viktor og Hinrik hafa starfað á mörgum af bestu veitingastöðum Íslands.
Viktor & Hinrik kynntust þegar þeir kepptu í heimsmeistarakeppni í matreiðslu ''Bocuse d´or'' árið 2017. Báðir hafa þeir mikla ástríðu fyrir keppnismatreiðslu og voru báðir í Kokkalandsliðinu um nokkur ára skeið. Viktor Örn vann gull í keppninni kokkur ársins árið 2013 og 2014 tók hann einnig gullið í norðurlandakeppninni.
Við erum öll mjög spennt fyrir þessu samstarfi & hlökkum við til að halda veislur með gestum okkar sem allra fyrst.
Dæmi um veisluseðla fyrir brúðkaup, afmæli, árshátíðar, galadinner o.fl. Fyrir frekari upplýsingar sendið póst á gamlabio@gamlabio.is.
Ingólfsstræti 2a - s: 563 4000 - gamlabio@gamlabio.is - kt. 670313-0260 - VSK nr. 113657